Gjafabréf í gistingu
Gleddu fjölskyldu, vini og vandamenn með gjafabréfi Íslandshótela.
Gjafabréf Íslandshótela hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár enda einstök tilboð og margir möguleikar í boði.
Við bjóðum upp á gjafabréf sem gilda á allt að 17 hótelum um allt land.
Almenn gjafabréf gilda í 4 ár frá útgáfudegi en sérsniðin gjafabréf hafa takmarkaðri gildistíma.
Gjafabréfin okkar gilda einungis í standard herbergi nema annað sé tekið fram. Hægt er að greiða aukalega fyrir uppfærslu í aðrar herbergjatýpur.
Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum og vonum að dvölin verði ánægjuleg og eftirminnileg.