Íslandshótel skiptast í 3 hótelvörumerki sem hafa starfsemi sína á Íslandi — Fosshótel sem eru staðsett hringinn í kringum landið, Grand Hótel Reykjavík, Hótel Reykjavík Centrum. Hjá Íslandshótelum starfa þegar mest lætur nálægt 1000 manns og býður fyrirtækið upp á rúmlega 1.800 herbergi. Íslandshótel leggja metnað sinn í að sinna samfélagslegri ábyrgð og veita styrki til þarfra málefna og eru umhverfismál, forvarnarmál og líknarmál þar fremst í flokki. Íslandshótel vinna einnig að því markmiði að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar eins og kostur er. Við viljum vera í fararbroddi á sviði umhverfismála og leggjum metnað okkar í að styrkja góð málefni sem tengjast umhverfinu.
Við störfum eftir ströngum gæða- og umhverfisstöðlum og hafa hótelin okkar meðal annars hlotið Svansvottun Norræna umhverfismerkisins, gæðavottun Vakans og vottun frá Túni, eftirlits- og vottunarstofu fyrir lífræna og sjálfbæra framleiðslu.
Grand Hótel Reykjavík er fjögurra stjörnu ráðstefnuhótel fyrir ferðamenn og ráðstefnugesti sem vilja njóta glæsilegar aðstöðu og framúrskarandi þjónustu. Grand Hótel Reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins með 311 herbergi og 11 ráðstefnu- og veislusali. Á hótelinu er einnig fyrsta flokks veitingastaður og heilsulind með líkamsræktaraðstöðu. Grand Hótel Reykjavík hefur einnig hlotið Svansvottun Norænna umhverfismerkisins, gæðavottun Vakans og einnig vottun frá Túni.
Fosshótelin eru staðsett hringinn í kringum landið, í nálægð við stórbrotið landslag og einstakar náttúruperlur. Fosshótel leggja metnað í að taka vel á móti öllum ferðalöngum og að skapa vinalegt andrúmsloft fyrir þá, hvort sem um ræðir einstaklinga, fjölskyldur eða hópa. Flest hótelanna eru opin allt árið um kring, en örfá með takmarkaða starfsemi yfir vetrartímann. Mörg Fosshótel hafa þegar fengið gæðavottun Vakans og önnur eru í því ferli.
Hótel Reykjavík Centrum er fyrsta flokks hótel í hjarta borgarinnar með 89 herbergi, fundarsali, bar og veitingastað. Á hótelinu fá töfrar liðinna tíma að skína í gegn, enda er það staðsett við eina af elstu götum borgarinnar, Aðalstræti. Hótelið er byggt á gömlum grunni og elsti hluti hússins var byggður árið 1764. Hótel Reykjavík Centrum hefur hlotið 4 stjörnur í stjörnuflokkun Vakans.
Reykjavík Spa er stórglæsileg snyrti- og nuddstofa með fallegri heilsulind, þar sem við leggjum áherslu á rólegt, slakandi og endurnærandi umhverfi.
Snyrtistofan er búin sex rúmgóðum herbergjum fyrir fjölbreytt úrval af snyrti-, nudd- og spameðferðum. Starfsfólk okkar tekur vel á móti öllum gestum og markmið okkar er að allir gangi út hæstánægðir og endurnærðir.
Grand Brasserie er fallegur veitingastaður þar sem þú getur notið fyrsta flokks matargerðarlistar. Veitingastaðurinn er opinn daglega og er með bæði hádegis- og kvöldverðarseðil. Fjölbreytt úrval ljúffengra rétta prýða matseðilinn. Áhersla er lögð á íslenska og norræna matargerð og eingöngu er notast við úrvals hráefni.
Bjórgarðurinn er samkomustaður allra bjórunnenda og þeirra sem þykir gott að borða góðan mat. Á Bjórgarðinum getur þú gengið að því vísu að fá alltaf góðan bjór, enda bjóðum við ótrúlegt úrval úr öllum áttum,
bæði á krana og flöskum. Mikil áhersla er lögð á árstíðarbundinn bjór og samstarf við innlend brugghús. Við sérhæfum okkur í að para saman mat og bjór enda teljum við að bjór upphefji allar máltíðir.
Haust er einstakur veitingastaður í Reykjavík. Matseldin einkennist af ferskum, íslenskum hráefnum í nýjum og spennandi búningi. Nafnið Haust er engin tilviljun en veitingastaðurinn er tileinkaður litum og fegurð íslenska haustsins. Við vildum fanga þessa fegurð og ferskleikann sem fæst við að draga djúpt andann á björtum haustmorgni.