Fosshótel Stykkishólmur Suite
Svíta
 Aerial view of the Fosshotel Stykkishólmur in West Iceland
Fosshótel Stykkishólmur & Breiðafjörður
Fosshotel Stykkishólmur exterior
Fosshótel Stykkishólmur
Stykkisholmur Reception
Gestamóttaka
Stykkisholmur Bar Area
Stykkisholmur Bar
Stykkisholmur Restaurant
Veitingastaður
Stykkisholmur Double Newly renovated
Tveggjamanna herbergi
Stykkishólmur Familyroom
Fjölskylduherbergi
Stykkisholmur Double Original Building
Tveggjamanna herbergi óuppgert
Fosshótel Stykkishólmur Suite
Svíta
 Aerial view of the Fosshotel Stykkishólmur in West Iceland
Fosshótel Stykkishólmur & Breiðafjörður
Mynd 1 af 0

Fosshótel Stykkishólmur

HÓTEL
  • Hotels in Reykjavík
  • Hotels in North and East
  • Hotels in South
  • Hotels in West

Fosshótel Stykkishólmur

Fosshótel Stykkishólmur er þriggja stjörnu hótel með einstaklega fallegt útsýni yfir bæinn og eyjarnar í kring.

Hótelið er tilvalinn áfangastaður fyrir þá sem vilja ferðast um Snæfellsnesið eða sigla um eyjarnar og skoða hið einstaka dýralíf sem þar finnst. Á hótelinu er að finna hlýlegt veitingahús sem býður upp á a la carte seðil þar sem hráefnið er sótt úr nærumhverfinu og innblásturinn kemur úr náttúrunni.

Á Stykkishólmi er frábær aðstaða fyrir golf iðkendur og er frítt fyrir hótelgesti að spila á Vikurvelli.

Herbergi

Rúmgóð og notaleg herbergi á frábærum stað á Snæfellsnesinu.

Á Fosshótel Stykkishólmi er boðið upp á úrval herbergja sem bjóða ýmist upp á útsýni yfir bæinn, eyjarnar eða fjöllin í kring. Öllum herbergjum fylgja dagleg þrif ásamt þráðlausu neti, sjónvarpi, síma og sér baðherbergi.

sjá nánar

Fundir og Viðburðir

Þú getur alltaf gert ráð fyrir vinalegri og persónulegri þjónustu.

Fosshótel Stykkishólmur er fullkomin vettvangur til að hýsa næstu ráðstefnu eða viðburð.

sjá nánar

Veitingastaður

Hlýlegur veitingastaður þar sem hægt er að njóta einstaks útsýnis yfir Stykkishólm og eyjarnar á Breiðafirði.

Veitingastaðurinn leggur áherslu á hráefni af Breiðafjarðarsvæðinu svo sem bláskel, hörpuskel, ferskan fisk, þörunga og fleira.

sjá nánar

Svör við algengum spurningum

  • Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00. 

  • Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.

  • Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka eða breyta bókun allt að 48 klst. fyrir komu í gegnum link sem fylgir með bókunarstaðfestingu. 

    Athugið að verð og framboð kann að hafa breyst.

  • Morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til kl. 10:00.

  • Já, hundar eru velkomnir á hótelið. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Hægt er að kynna sér skilmála hér.

  • Já, bílastæði eru fyrir framan hótelið. 

  • Já.

  • Já, það eru hleðslustöðvar á bílastæði hótelsins. 

  • Já, Fosshótel Stykkishólmur býður uppá glæsilegan fundar- og ráðstefnusal sem var allur endurnýjaður árið 2020.

  • Hótelið er opið allt árið nema frá 11.des-11.jan.

  • Hjá Íslandshótelum leggjum við mikla áherslu á sjálfbærni og að tryggja næði gesta okkar. Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminar með því að lágmarka notkun á óþarfa hreinsiefnum og 
    vatni. Þetta þýðir að starfsfólk okkar munu eingöngu fara inn í herbergi gesta til að þrífa og fylla á, sé þess óskað.

    Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað meðan á dvöl stendur.Við vonum að með þessu upplifir þú persónulegri og afslappaðari dvöl hjá okkur.

    Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk okkar.

    Fyrir nánari upplýsingar um sjálfbærnistefnu og Green Key vottun Íslandshótela, smelltu hér.

  • Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti 
    vantað meðan á dvöl stendur.

  • Frá og með 1. janúar 2024 verður lagður gistináttaskattur að upphæð 666 ISK á hvert herbergi / hverja gistinótt. Skatturinn verður innheimtur við komu á hótel.