Framkvæmdastjórn

Davíð Torfi Ólafsson

Davíð Torfi Ólafsson

Forstjóri

Davíð hóf sinn feril hjá Íslandshótelum  árið 2009 og var framkvæmdastjóri Fosshótela næstu þrjú árin. Árið 2012 markaði ákveðin tímamót í sögu Íslandshótela en þá sameinuðust öll hótelin undir merkjum félagsins og Davíð tók við sem forstjóri Íslandshótela sem hann hefur gengt allar götur síðan.

Áður starfaði Davíð sem framkvæmdastjóri Húsaco ehf og þar áður var hann hjá Íslenska Útvarpsfélaginu. Hann hefur setið í mörgum stjórnum og nefndum í gegnum tíðina. Má þar nefna stjórn SA, stjórn SAF, fagráð Íslandsstofu og nefnd um stefnumótun Höfuðborgarstofu.

Kolbrún Jónsdóttir

Kolbrún Jónsdóttir

Framkvæmdastjóri Fjármálasviðs

Kolbrún hefur starfað sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs frá árinu 2016 og sat í stjórn félagsins frá 2015-2016. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Kjölfestu, framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá VÍS, útibússtjóri og forstöðumaður hjá Íslandsbanka og fjármálastjóri hjá Húsasmiðjunni. Kolbrún hefur setið í stjórnum fyrirtækja eins og Íslandsbanka, Húsasmiðjunni, Fastus, Senu og verið formaður endurskoðunarnefndar fyrir Birtu lífeyrissjóð.

Kolbrún hefur lokið Cand Oecon frá Háskóla Íslands og Executive Education frá UNC Kenan-Flager Business School. 

Hjörtur Valgeirsson

Hjörtur Valgeirsson

Framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs

Hjörtur hefur starfað hjá Íslandshótelum síðan 2016 þegar hann hóf störf sem hótelstjóri á Fosshótel Reykjavík. Árið 2020 tók hann við starfi sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.

Hjörtur hefur unnið við hótelstörf í rúm 20 ár. Áður starfaði Hjörtur sem hótelstjóri á Centerhotel Þingholti, sem gestamóttökustjóri á Hilton Reykjavík Nordica, við ýmis hótelstörf hjá Crowne Plaza og Halkin í London og sem hótelstjóri á Hótel Eddu. Hjörtur hefur setið í stjórn FHG frá 2022.

Hann lauk BA prófi í hótelstjórnun frá London South Bank University og MBA frá Vlerick Management School í Leuven.

Erna Dís Ingólfsdóttir

Erna Dís Ingólfsdóttir

Framkvæmdastjóri Mannauðs- og Gæðasviðs

Erna Dís hefur starfað hjá Íslandshótelum síðan 2002 og setið í framkvæmdastjórn Íslandshótela frá árinu 2018.

Hún hefur yfir 20 ár reynslu innan hótel og veitingageirans og unnið í flest öllum stöðum innan hans. Áður starfaði Erna Dís sem starfsþróunar- og gæðastjóri og hótelstjóri hjá Íslandshótelum, sem deildarstjóri hjá Fosshótelum og 101 hótel, og á upplýsingamiðstöð ferðamanna hjá Hafnarfjarðarbær. 

Hún hefur lokið MSc gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands, B.A. gráðu í fatahönnun og markaðsfræði frá University of Wales og Accademia Italiana, IPMA vottun og Advanced diploma C2 í Ítölsku.

Ásmundur Sævarsson

Ásmundur Sævarsson

Framkvæmdastjóri Sölu- og Markaðssviðs

Ásmundur hefur starfað hjá Íslandshótelum síðan 2015 og allan tímann í framkvæmdastjórn. Hann hefur yfir 20 ára reynslu í ferðaþjónustu og kom frá Primera Travel Group þar sem hann var í sjö ár og stýrði vef- og markaðsmálum fyrir ferðaskrifstofur félagsins í Skandinavíu. Fimm árin þar á undan starfaði hann sem sérfræðingur í markaðsdeild Icelandair. Ásmundur starfaði í nokkur ár hjá fjarskiptafyrirtæki með aðsetur í Washington D.C. og Norður-Virginíu.    

Ásmundur er viðskiptafræðingur frá Coastal Carolina University, SC, USA og hefur einnig lokið Mini MBA frá Akademias - Leiðtoginn og stafræn umbreyting.

Rósa María Ásgeirsdóttir

Rósa María Ásgeirsdóttir

Framkvæmdastjóri Upplýsingatæknisviðs

Rósa hefur starfað hjá Íslandshótelum síðan í ársbyrjun 2024, kom þá inn í framkvæmdastjórn sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs.

Hún hefur yfir 20 ára reynslu úr upplýsingatækni, var í 19 ár hjá Íslandsbanka þar sem hún gengdi ýmsum störfum innan upplýsingatækni, seinni áratuginn eingönu í stjórnunarstörfum innan hugbúnaðar og færði sig 2021 yfir til Völku og svo Marel að stýra teymum sem sinntu hugbúnaðargerð fyrir fiskiðnaðinn.

Rósa er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.